Jura lögfræðiþjónusta · Garðabær
Lögfræðiþjónusta byggð á víðtækri reynslu
Hreinn Loftsson hefur áratuga reynslu af lögmennsku, málflutningi, stjórnsýslu, atvinnulífi og ráðgjöf fyrir stór og lítil fyrirtæki og fjölmarga einstaklinga.
Um Hrein
Lögmaður með breiðan og fjölbreyttan bakgrunn

Hreinn Loftsson lauk laganámi frá Háskóla Íslands árið 1983 og stundaði framhaldsnám í Oxford á árunum 1984–1985. Hann öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum árið 1988 og fyrir Hæstarétti árið 1993.
Frá því hann hóf lögmannsstörf árið 1988 hefur hann sinnt lögfræðilegri ráðgjöf og málflutningi fyrir stór og lítil fyrirtæki og fjölmarga einstaklinga. Ferillinn spannar einnig verkefni í stjórnsýslu, ráðuneytum, atvinnulífi og opinberum verkefnum.
Frá árinu 2014 hefur Hreinn rekið eigin lögmannsþjónustu í Garðabæ.
Reynsla
Reynsla úr lögmennsku, stjórnsýslu og atvinnulífi
Bakgrunnur
Menntun, réttindi og reynsla
Stutt yfirlit yfir nám, málflutningsréttindi og helstu verkefni á sviði stjórnsýslunnar og atvinnulífsins.
1983
Laganám
Lauk laganámi frá Háskóla Íslands.
1984–1985
Oxford
Stundaði framhaldsnám í Oxford.
1988
Lögmannsstörf
Hóf lögmannsstörf og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum.
1990–2000
Lögmenn Höfðabakka
Einn eigenda Lögmanna Höfðabakka.
Meðal meðeigenda á þeim tíma voru Árni Vilhjálmsson hrl., Brynjólfur Kjartansson hrl., Eiríkur Tómasson hrl., Jóhannes Rúnar Jóhannsson hrl., Ólafur Axelsson hrl., Þórður S. Gunnarsson hrl. og Vilhjálmur Árnason hrl.
2000–2014
Sjálfstæður rekstur
Rak Lögmenn Höfðabakka áfram, fyrst einn og síðar í samstarfi við Þórð Bogason hrl.
1991–1992
Forsætisráðuneytið
Aðstoðarmaður í forsætisráðuneytinu.
1992–2002
Einkavæðing
Formaður framkvæmdanefndar um einkavæðingu.
1993
Hæstiréttur
Öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti.
2000–2007
Baugur Group hf.
Stjórnarformaður Baugs Group hf.
2008–2017
Birtíngur ehf.
Eigandi og stjórnarformaður útgáfufélagsins Birtíngs ehf.
2014–nú
Jura lögfræðiþjónusta
Rekur eigin lögmannsþjónustu í Garðabæ.
2019–2023
Dómsmálaráðuneytið
Aðstoðarmaður ráðherra í dómsmálaráðuneytinu.
Greinar og umfjöllun









